Ævintýralífið

Ótrúlega spennandi færslur um líf tvíburamömmu í Grafarvogi. Þakka þeim sem nenna að lesa.

föstudagur, febrúar 01, 2008

M&M

Uppgötvun dagsins:

Í einu stkykki M&M brúnum sem mér finnst svo góður (sjáf færslu í nóvember) eru hvorki meira né minna en 4,3 hitaeiningar. Er það ekki dálítið mikið?

Ef við leikum okkur aðeins með tölur:

10 stk. gera þá 43 he
100 stk 430.

Niðurstaða: Ég held áfram að fá mér M&M 3 sinnum ári og nýt þess.

þriðjudagur, janúar 29, 2008

Úti er alltaf að snjóa...

trallalalla...

Ég mætt með fögur fyrirheit og ég veit ekki hvað.

Það helsta sem á daga mína hefur drifið síðan síðast er í stuttu máli:

- Varð eign þvottahúsa ríkisspítalanna í sólarhring. því ég fór í hálskirtlatöku fyrir 2 vikum. Jebb, í annað skipti á ævinni. Vonandi náðist allt í þetta skipti því mig langar sko ekki aftur. Ég fór eftir öllum fyrirmælum og held að ég hafi farið nokkuð létt í gegnum þetta. Afrekaði að borða 1 líter af ís á einum sólarhring.

- Ég er í pásu frá BC vegna hálskirtlatökunnar. En vá hvað ég sakna æfinganna. Stefni að því að fara aftur eftir páska. Á meðan verður World Class að duga. Ég hef breytt æfingunum mínum eftir BC-ið og tek nú magaæfingarnar í hundraðatali og armbeygjur þar á milli. Ég er ekki alveg búin að gera það upp við mig hvort ég ætli að gera Froska. Læt þá kannski bara duga heima úti í garði.

- Við fjárfestum í Garmin eftir laaaanga umhugsun. En hann var á punktatilboði hjá N1 í desember og þegar ég komst að því að ég átti 1200 og eitthvað punkta var ekki hægt að sleppa þessu frábæra tilboði. En þetta er bara snilldargræja og mér líður eins og ekta íþróttamanni með hana um úlnliðinn.

- Eiginmaður, börn og köttur eru bara hress.

Læt þetta duga í dag.

Adios....
Gurný

föstudagur, nóvember 16, 2007

M&M

Andinn heltist yfir mig "uforvarende" sem þýðir bara eitt: Skella einu bloggi inn.

Það helsta í fréttum er að ég er búin að borða "nokkur" M&M. Ef það er eitthvað sem ég stendst ekki er það ofangreint sælgæti. Ég ákvað að fá mér fyrst 10 stk, svo sótti ég mér 10 í viðbót sem áttu að vera það allra síðasta. Í þriðju ferðinni eftir næstu allra allra síðustu 10 sykkin ákvað ég að hætta að blekkja sjálfa mig og kláraði pokann. Það var ekki svo mikið eftir, kannski 30(enn í afneitun).
Mér finnst ég líka eiga svo bágt í kvöld því ég er komin með einhverja pest. Skildi ekkert í því í vinnunni í dag hvað ég var að finna til í mjöðmunum, öðrum fótleggnum, olnboganum og fleira. Kom heim og tók til íþróttadótið mitt en fannst ég eitthvað óvanalega þreytt. Mældi mig og var komin með hita :-( Ég fæ svo sjaldan hita að ég þekki varla einkennin lengur.
Engin BC æfing í dag. Vonandi sef ég þetta úr mér.
Svo er ég búin að vera grasekkja í 4 daga sem þýðir að ég á ennþá meira skilið þetta M&M sem ég er búin að gæða mér á (enn meiri afneitun).

Það er eins gott að ég sofi þetta úr mér svo ég komist á útiæfinguna á laugardaginn.

Svo var ég að skrá mig í BC til 23.des. Ég get bara ekki hætt strax.

Lifið heil, löggst í sófan.
Good night.

þriðjudagur, október 16, 2007

69 dagar til jóla

Sá í dag að það eru bara 69 dagar til jóla, mikið eru það nú góðar fréttir fyrir jólasjúklinginn mig. Ég þarf að fara að taka stöðuna á jólasniðunum mínum, efni, límbyssunni ofl. Ég er búin að kaupa mér snið af einum jóladúk sem ég ætla að gera. Mæli eindregið með fondur.is. Í fyrra keypti ég mér jólakallasnið sem ég hafði aldrei tíma til að gera og það er aldrei að vita nema ég geri þá núna.

Ég þarf líka alvarlega að fara að opna augun fyrir jóladagatalagjöfunum. Ég þarf ekki að kaupa nema 48 gjafir til þess að pakka inn.

Eiginmaðurinn er á batavegi eftir hjólaslysið fyrir tveimur vikum. Meira vesenið að brjóta viðbeinið því það er svo lítið sem hægt er að gera í því annað en að passa sig og vona að brotið grói rétt.

Ég á eftir 7 vikur í Boot Campinu :-) Og þetta er ennþá jafnskemmtilegt. Ég finn mikinn mun á mér. Get til dæmis auðveldlega gert armbeygjur á tánum og fullt af situpsum.

Hafið það gott...

föstudagur, september 28, 2007

Toyota skójóta

Mitt litla dönskuhjarta tekur aukslög af móðgun þegar ég heyri auglýsingu á borð við:
Vi viser biler i alle stæder!
Ég get bara ekki með nokkru móti skilið hvað er verið að meina. Ætluðu þeir að segja stæði? eða stærðum?
Spurning um að senda póst a Toyota og biðja um þýðingu.

Farvel

Margt og mikið

Hellú!

Er alltaf að væflast með þetta blogg on/off? Hef ég eitthvað merkilegt að segja? Tja..
Best að koma einni færslu inn.

Á dagatalinu mínu í vinnunni stóð við 27.sept: Haustmánuður hefst. Passar mjög vel við veðrið í dag. Rok og rigning og rok og rigning :-/
Ég er alltaf að bíða eftir þokkalegu helgarveðri því ég á eftir að græja garðinn fyrir veturinn - haustlaukarnir blómstra varla í poka í bílskúrnum.

Ég ákvað að skella mér í Boot camp svona til tilbreytingar. Ég er að klára viku nr.3 og þá eru bara 9 eftir. Í stuttu máli sagt er þetta svakalegasta líkamsrækt sem ég hef verið í. Þarna er sko tekið á því!
Ég var búin að heyra alls konar hryllingssögur af BC en ég hef ekki ennþá séð fólk æla, falla í yfirlið eða deyja þarna inni.
Ég fór meira að segja á 2 tíma útiæfingu síðustu helgi. Mætti galvösk niður í Elliðárdalinn rétt fyrir kl.9. Fékk vægt sjokk þegar ég sá alla bílana og fólk streymdi að. Giska á að það hafi verið 70-80 manns á þessari æfingu. Það sem ég lét hafa mig út í: Ætla ekki að telja allt upp en toppurinn var að skríða í háu grasi eins og hermenn gera. Mig vantaði bara kamóflas gallann og græna andlitsmálningu, þá hefði þetta verið enn betra. Þegar mér fannst ég vera búin að taka vel á því leit ég á klukkuna og ætlaði varla að trúa mínum eigin augum: 35 mínútur búnar!!! Það hvarflaði að mér að ég myndi sennilega ekki halda út 85 mín í viðbót.
En viti menn - auðvitað gerði ég það og var svakalega stolt af sjálfri mér.
Getið alveg bókað það að ég mæti aftur á 2 tíma útiæfingu eftir viku.

Annars gengur lífið sinn vanagang, vikan hjá mér er mánudagur og svo er allt í einu kominn föstudagur.

Adios :-)

fimmtudagur, júlí 26, 2007

Pæling dagsins...

Þeir sem hlaupa á Esjuna sér til heilsubótar eru þeir í gönguskóm eða hlaupaskóm?

Bara að spá.... því ég ætla að skokka upp um helgina. Hef hugsað mér að fara hægri leiðina og sleppa skriðunum.

The mountain goat!

sunnudagur, júlí 15, 2007

Veðurblíða

endalaust!
Þetta er að verða eins og í útlöndum. Maður fer bara í sumarfötum á morgnana án þess að kíkja á hitamælinn fyrst. Dásamlegt!

Skellti mér aftur upp á Esju í gærmorgun. Þurfti nauðsynlega að reyna að bæta tímann minn frá því í þokunni á mánudagskvöldið. Mér fannst erfiðara að fara þetta í þessum htia sem var í gær og þurfti þess vegna að stoppa tvisvar til þess að drekka (stoppaði klukkuna á meðan - kannski er það svindl í tímatökunni??). Ég ákvað að ég þyrfti að drekka til þess að lognast ekki út af þarna í hlíðinni.
Komst upp að steini á tæpum 44 mín. Bara ánægð með það og 3 mín bæting frá mánudeginum. Þetta er hin fínasta æfing finnst mér og ágætis tilbreyting. Næst þegar ég fer ætla ég að fara hægra megin og sjá hvaða tíma ég get náð þá leið. Það er örugglega auðveldara að skokka niður þeim megin.

Dreymdi svo erfiðan draum í nótt. Ég var að hlaupa í RM og það gekk svo hægt og ég var svo þreytt í fótunum. Hugsaði að það væri ekki sniðugt að skokka á Esjuna daginn fyrir hlaup. Hehe... það hljómar eins og ég sé algjör hlaupari.

Ég ætla að grafa upp fleiri sögur af Laugavegshlaupinu. Dáist að fólki sem fer í þetta hlaup. Þvílíkt afrek.

Bara 2 vinnuvikur í frí!!! Jeijeijei...

Sólarkveðja...